ELDFLUGAN

Eldflugan er forvarnarverkefni fyrir börn. Hingað til hefur aðallega verið lögð áhersla á umferð og umferðarreglur, en einnig hefur verið unnið með annað forvarnarefni s.s. brunavarnir, útbúnað í bílum, ef börn týnast og hættu sem getur skapast af því að fara upp í bíl hjá ókunnugum, svo eitthvað sé nefnt.

Elli eldfluga er tákn verksins; eldflugur lýsa í myrkri og vísa þannig til endurskins. Elli á nokkra vini, þau heita Beta býfluga, Jóndi járnsmiður og Orri ormur. Þessar ágætu ævintýrapersónur hafa búið til bók sem heitir Undraeyjan. Það er fyrsta bók í bókaflokki um Ella eldflugu og vini hans. Bókin veitir börnum tækifæri til að læra ýmislegt um umferðarreglur og um leið geta þau leikið sér með límmiðana og flutt þá til svo oft sem þau vilja.
Bókin er prentuð hjá Gutenberg og er nýjung í prentun á Íslandi. Ekki hefur áður verið prentuð hér á landi límmiðabók þar sem prentað er á "static" pappír og stönsuð út flókin form sem festast við síðurnar.

www.eldflugan.is er að hluta til gagnvirk þannig að börn geta sent Ella og vinum hans tölvupóst. Mörg hundruð börn hafa sent Ella sínum póst og sagt honum ýmis leyndarmál og fengið góð ráð. Öllum pósti er svarað persónulega, aldrei eru notuð stöðluð svör enda erindi barnanna mörg og misjöfn.

Í samvinnu við RÚV hafa verið framleiddir 14 sjónvarpsþættir um Ella og vini. Börn hafa tekið þessum þáttum fagnandi og ekki verið löt að senda Ella eldflugu tölvupóst. Það er ánægjulegt að sjá hvað börn gangast upp í því að tileinka sér boðskap Eldflugunnar og leggja metnað sinn í að læra það sem um er fjallað hverju sinni.
Eggert Gunnarsson dagskrárgerðarmaður hefur yfirumsjón með gerð þáttanna.

Þá má nefna að með vissu millibili koma spurningaleikir inn á www.eldflugan.is
Þar gefst börnum tækifæri á að svara ýmsum spurningum og auka þannig þekkingu sína á
hlutum sem börnum er nauðsynlegt að vita skil á. Dregið er úr réttum lausnum og verðlaun send til vinningshafa.


Myndskreyting: Kári Gunnarsson
Vefsmíði: Jóhann Páll Kristbjörnsson
Fagleg ráðgjöf við verkefni: Kolbrún Sigurðardóttir forstöðumaður KHÍ
Framleiðandi og útgefandi:
Eldflugan útgáfa - Firefly Publishing House
Sólvallagötu 27 - IS-101 Reykjavík Iceland
Tel.: (+354) 551 2795 Cellular: (+354) 892 2795
e-mail: afk@simnet.is - eldflugan@eldflugan.is
www.eldflugan.is

Til baka