Elli og vinir, UNDRAEYJAN
Lærdómsrík límmiðabók.

Halló krakkar! Þetta er ég - Elli eldfluga. Þakka ykkur kærlega fyrir allan tölvupóstinn sem þið eruð búin að senda mér, þið eruð verulega dugleg.

Og vitið þið nú bara hvað! Ég hef verið að dunda við að búa til svo ljómandi fallega bók. Málið er það að vinir mínir voru búnir að gleyma nokkrum mikilvægum atriðum úr umferðarreglunum, svo mér datt í hug að þið gætuð hjálpað þeim að rifja þau upp. Og þess vegna fór ég að búa til bók, og bað Betu býflugu, Jónda járnsmið og Orra orm að hjálpa mér.

Við erum ekki alveg búin með hana. Þess vegna þurfum við að biðja ykkur að hjálpa til.

Það á eftir að setja marga hluti á sinn stað, en þeir fylgja með bókinni í formi límmiða. Við ætlum að biðja ykkur að setja límmiðana á sinn stað og þá er bókin tilbúin. Svo getið þið leikið ykkur með bókina eins og þið viljið því það er hægt að færa límmiðana til og frá aftur og aftur.

Ég vona að ykkur þyki Undraeyjan skemmtileg bók og vona líka að þið getið lært heilmikið.

Kær kveðja,
ykkar vinur Elli eldfluga

 
Sýnishorn Sýnishorn
Sýnishorn
Kaupa bók
© Eldflugan útgáfa 2004. eldflugan@eldflugan.is sími: 892 2795