Blábyrgi er bókaflokkur ætlaður yngri börnum. Í bókunum er stuðst við hinn séríslenska þjóðararf, álfatrú og ævntýri sem ekki eiga sér stað í hinum raunverulega heimi. Eða það halda margir.

Höfundur vill þó vekja athygli á að oft er tekið mið af tilveru álfa t.d. við lagningu vega og svokallaðir álfasteinar eru ekki fluttir úr stað. Þess eru dæmi að sprenglærðir verkfræðingar geri munnlegan samning við álfa og aðra vætti með góðum árangri.

Í bókunum eru teknar fyrir þær hættur sem leynast í íslenskri náttúru, svo sem djúpir hylir í litlum lækjum, botnlaus dý og margt fleira sem verður á vegi þeirra sem ferðast um í íslenskri náttúru og er borgarbörnum algjörlega framandi.

Bókunum er ætlað að veita ungum börnum innsýn og frekari þekkingu á íslensku tungumáli, þar koma fyrir mörg orð sem ekki eru notuð í daglegu nútímatali og gefst þá foreldrum kostur á að útskýra meiningu þeirra fyrir börnum sínum og víkka þar með skilning þeirra á móðurmálinu. Í bókunum má greina stéttaskiptingu og fordóma sem eru börnum ekki að skapi og gerir líf þeirra öllu jafnan erfiðara.

Tvær fyrstu bækurnar af Blábyrgir voru gefnar út 2005 og þær má lesa hérna á vefsetrinu. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að gefa allt verkið út á DVD og er það væntanlegt á markað í nóvember 2006.

Bækurnar fengu úrvalsdóma hjá Morgunblaðinu og fóru á metsölulista í bókabúðum Pennans.